4 kjúklingabringur 1 Krukka salsasósa medium sterk eða hot eftir smekk. 1 krukka ostasósa. 4 msk rjómaostur. Doritos snakk, Cool American. Rifin ostur
Aðferð
· Skerið kjúklinginn í bita og steikið (þarf ekki að krydda). Leyfið kjúklingnum að kólna. · Myljið hálfan snakkpokann í eldfast mót. · Hrærið saman sósunum og rjómaostinum í skál og bætið kjúklingnum við. · Hellið síðan blöndunni yfir snakkið í eldfasta mótinu. · Að lokum er osturinn settur yfir og inn í ofn á ca. 180- 200 °C. Þar til osturinn er orðin brúnn og fallegur. · Tillaga að meðlæti: Hrísgrjón, hvítlauksbrauð og salat.